Foxy Ladies

21.01.2008 13:32:50 / Stína

GLEÐILEGT ÁR SKINKURNAR MÍNAR

JÆJA!!!!!!

Ég fann lengst upp í erminni á mér loforð sem hefur eitthvað farið á mis við ýmislegt!!!!!

Í tilefni þess er ég að hugsa um að efna það og opna dyrnar heima hjá mér og bjóða upp á félagsskap fyrir þá sem vilja... Spurning um að drekka eitthvað af þessum rauðvíns og hvítvínsflöskum sem eru farnar að rykfalla upp í hillu hjá mér...

Setjum þetta bak við eyriað, en ekki jafn djúft og í ermina

kv stína


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 16:26:19 / Hjördís

santa claus is coming to town...

.. djók.. það er bara ég :haha:

Anyways.. ætla að gera tilraun tvö til þess að komast norður um helgina! komst ekki síðustu helgi sökum veðurs.. og mér heyrist það á öllu að það verði ekkert skreytt heima hjá mér fyrr en ég mæti á staðinn! (og kannski frekar seint að gera það 21-22 des:S)

Er að pæla í því að bjóða nokkrum vel völdum Akureyringum upp á mínar einstöku kræsingar og hafa afmæliskaffi á sunnudaginn (tæpri viku fyrir tímann).. JIBBÝ

Þannig að helgin verður pretty much bara að eyða tíma með familíunni.. ætli ég byrji ekki á því að vera sveitt í eldhúsinu við bakstur.. svo taka jólaskreytingar við..  smá pása eftirmiðdag laugardags þar sem ég fer á tónleika með Cortes vini mínum:D.. og svo tekur bara við andlegur undirbúningur fyrir sunnudagskaffið:P

En ekki meira í bili.. algjör óþarfi að blogga um of.. sérstaklega þegar það er bara gert á tveggja mánaða fresti:P

later gater


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 19:44:18 / Hjördís

Ho ho hóóóó

Jæja gott fólk! ég var bara næstum því búin að gleyma þessari síðu!:S

En vildi bara koma því á framfæri að í dag... 13 október.. fór ég og verslaði jóladót!!!!!! já ég sagði JÓLAdót!! Eftir að ég kom heim gerði ég svo ALLT hreint.. alveg JÓLAhreint:D en ætla nú samt að reyna að róa jólataugarnar og koma mér niður á jörðina... allavega eitthvað fram í nóvember..:haha:

Ekki meira í bili...... bið að heilsa

Hjördís:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 17:30:41 / Íris Egils

Klöppum fyrir stelpunni sem....

Loksins græjaði barnalandsíðu!!!!!! :haha:
 
jæja þá er ég búin að opna síðu fyrir litla töffarann 8)
slóðin er www.blondal.barnaland.is
Síðan er læst og lykilorðið er nafnið á kisanum okkar.. þið sem vitið það ekki sendið okkur bara póst og við segjum ykkur það ;)
njótið vel :!::!:;)
kv. mammsan

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 19:34:54 / Íris Egils

Litli engillinn

Jæja þá koma loksins nýjar myndir af prinsinum okkar ;)

Litli er algjör draumur, svo góður og duglegur. Sefur bara og sefur og er ofsalega duglegur að drekka. Svo finnst honum voðalega notalegt að fara með pabba sínum í sturtu. Hann fór í 5 daga skoðun um daginn og kom allt vel út úr henni og guttinn var þá búinn að þyngjast um 30 gr frá fæðingu. Svo í morgun var hann líka skoðaður og viktaður og aftur kom allt vel út og þá var minn búinn að þyngjast um 315 gr. á einni viku ;) hann er sem sagt að fá nóg hjá mömmu sinni :lol:
hér eru nokkrar myndir af gullinu okkar en svo ætla ég að gera barnalandsíðu.. er í vinnslu ;) hef ekkert gert undanfarið af því að ég er búin að vera slöpp en er öll að hressast núna :haha:

Hér er maður voða mannalegur ca. 4 klst gamall... og amma Inga segir að á þessari mynd sé prinsinn alveg eins og pabbi sinn þegar hann var lítill...

Hér er pabbi með drenginn sinn... voða stoltur 8)

kominn heim í vögguna ;)

 

Ég læt svo vita þegar síðan hjá litla töffaranum er til :D og ég vil þakka enn og aftur fyrir allar yndislegu kveðjurnar sem við höfum fengið *kiss*

kv, Íris  


» 22 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 22:03:57 / Stína

Litla gullið

Prins Sigurðsson

 

 Prins Sigurðsson


» 45 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 20:22:25 / Íris Ósk

Prinsinn mættur

:D Lítill og gullfallegur prins er mættur í heiminn, hann var 14 merkur og 52 cm og alveg gullfallegur:) Stína ætlar að setja inn mynd af honum við fyrsta tækifæri, því eg er svo mikið nörd að ég kann það ekki, hihi

En elsku Íris og Siggi innilega til hamingju með gullmolann ykkar. Love Íris Ósk


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 11:19:39 / Hjördís

BABY ON THE WAY!!!

Jæja.. nú styttist óðum í Foxy bumbukríli númer 3! svakaleg spenna í gangi hérna megin!:D

 

Íris.. varð svo spennt á því að tala við þig í morgun að ég legg inn pöntun á nýjum (og ef til vill síðustu) bumbumyndunum ;)

Lov jú:*


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 12:00:05 / Íris Egils

Myndir loksins ;o)

jæja.. loksins nenntum við í myndatökur ;)

hér er ég komin 34 vikur + 1

svo voru ekki teknar myndir aftur fyrr en 37 vikur :lol:

hér er nærmynd

ofl....

 


» 23 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 11:35:46 / Íris Egils

Sælar.........

 

Góðan Daginn Allar Saman.. ég vildi nú bara láta vita að ég er á lífi.. þó ég sé nú orðin alger svefnpurka og letihaugur.. :lol:

Það er svo sem ekkert mikið að frétta.. hef verið að vinna aðeins fyrir stebba gull og er byrjuð að græja hitt og þetta fyrir krílið (sem styttist óðum í :haha: )

skólinn byrjar svo á mánudaginn... 8| er ekki alveg í styði fyrir skólann.. en þetta reddast.. ;)

Fór í brúðkaup á laugardaginn hjá sævari frænda og Dísu .. þau voru agalega fín.. dísa var bara eins og prinsessa í kjólnum :haha:

Það kom allt gott út úr síðustu mæðraskoðun sem var á fimmtudaginn 8) og ég fer svo næst núna á næsta fimmtudag.. krílið er í höfuðstöðu en ekki búið að skorða sig alveg, það er nú farið að þrengjast aðeins um það þarna inni en það reynir nú samt alveg eins og það getur að dúndra í mig hehe :haha:

Ég er búin að vera ótrúlega löt í að taka bumbumyndir upp á síðkastið.. ekki nógu gott.. en ég vil kenna "ljósmyndaranum" um ;) við verðum nú að bæta úr því .. vonandi í kvöld..

en annars ætlaði ég bara að segja að ef ég verð eitthvað skrítin í dag þá er það vegna þess að ég bjó mér til þennan dýrindis boost áðan... með banana, epli, peru, skógarberjum, vanilluskyri og BITA ÚR TRÉSLEIF!!!! :$ haha..var eitthvað að reyna að ýta við draslinu á meðan það var í blendernum og... úbbs..

en annars.. hafið það gott bjútís.. ;) *kiss*

Íris... bumba


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 23:49:44 / Hjördís

50.000

Ég rétt kíkti inn á síðuna núna fyrir svefninn og sá að rúmlega 50.000 heimsóknir eru komnar á síðuna.... við gleymdum alveg að tékka á þessum 50 þúsundasta gest!!:P

Og Íris.. ég vil bumbumyndir:D.. (vonandi sé ég bumbuna samt næstu helgi;))

En þetta var nú ekki merkilegt í þetta skiptið8|

Buenos noches:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 13:25:02 / Hjördís

VERSLÓ

Jæja.. þá kemur nýtt blogg!:) (Íris.. ég var ekki búin að fá leið á bumbumyndunum þínum.. þær eru æðislegar..;))

En mig langaði bara að forvitnast hvað málið væri um versló.. hvað er fólk að fara að gera???

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 23:21:02 / Íris Egils

...og íris heldur áfram að einoka síðuna undir babytalk..

Jæja fyrst að ég virðist vera sú eina sem nennir að blogga þessa dagana þá verð ég víst bara að halda áfram að þreyta ykkur með myndum og fréttum af bumbunni minni (og Sigga.. hann á víst jafn mikið í henni og ég ;))..

annars er lítið að frétta nema það að ég er bara búin að vera að vinna voða mikið... orðin frekar þreytt.. en þetta er alveg að enda .. ég hætti 1 ágúst 8) og þá verður sko bara chill...

við fórum reyndar í útilegu um síðustu helgi austur í atlavík með írenu og steina sem var bara mjög gaman ;) það var étið.. slappað af.. spilað.. farið í sund ... og tekið nokkra lúra 8) sem sagt mjöög notalegt.

ég er nýbúin að fara í mæðraskoðun og það kom bara allt saman vel út þar, fínn blóðþrýstingur, blóðsykur í góðu.. og bara allt heila klabbið :D ljósmóðirin tilkynnti mér það líka að það væri greinilega nóg pláss hjá babyinu þar sem það lá þvert.. :lol: mig grunaði það svo sem þar sem karatespörkin hjá því hafa verið stanslaust í hægri síðuna á mér hahahah :haha:

en allavega þá er ég komin 32 vikur á morgun!!! 8| mér finnst tíminn líða svo ótrúlega hratt.. sem er ágætt því mann er farið að hlakka mjöög mikið til að fá litla kútinn í heiminn ;)

hér er ég komin 31 viku og 5 daga

og ein beint framan á..

p.s. þið hinar foxy eruð örugglega farnar að hugsa að ég ætti bara að fara að gera barnalandssíðu.. hehe.. sem er rétt!! það kemur að því og þá hafið þið nóg pláss til að blogga fyrir mér 8| 

kv. Íris 8)

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 23:50:33 / Íris Egils

bumban enn eina ferðina (er komin 29 vikur og 3 daga í dag)

er OF þreytt til að skrifa eitthvað skemmtilegt.. var að koma heim af 12 tíma vakt og er að fara að vinna aðra slíka á morgun... ;) en ætla að henda inn myndum..

hafið það gott skvísur :haha:

26 vikur og 5 dagar

29 vikur... dálítið þreytuleg hér ... ;)

29 vikur

hér er svo nýjasta myndin.. 29 vikur og 2 dagar 8)


» 22 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:38:43 / Stína

hahahahaha

Shitt allt er til..... já eða ekki til.....

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=3700


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 87471
Dagsetning
23. febrúar 2012